top of page
Top

KMK70, NR. 3
29/11/2026 KL. 16

Myndir og straumar
Dohnanyi, Hindemith og Strauss

PÉTUR BJÖRNSSON
GUÐBJARTUR HÁKONARSON
URH MRAK
ELENA POSTUMI

Efnisskrá
​

Erno Dohnanyi (1877 - 1960)

Serenaða í C dúr fyrir strengjatríó op. 10 (1902)

I. Marcia. Allegro

II. Romanza. Adagio non troppo

III. Scherzo. Vivace

IV. Tema con variazioni

V. Finale. Rondo

​

Paul Hindemith (1895 - 1963)

Sónata fyrir víólu og píanó nr. 1 í F dúr, op. 11 nr. 4 (1919)

I. Fantasie

II. Thema mit Variationen

III. Finale (mit Variationen)

​

Hlé

​

Richard Strauss (1864 - 1949)

Píanókvartett í c moll, op. 13 (1885)

I. Allegro

II. Scherzo. Presto

III. Andante

IV. Finale. Vivace

Flytjendur

Pétur Björnsson, fiðla

Guðbjartur Hákonarson, víóla

Urh Mrak, selló

Elena Postumi, píanó

FLYTJENDUR
petur_antjetaiga_5075_edited.jpg
Pétur Björnsson

Pétur Björnsson útskrifaðist með framhaldspróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2015 þar sem kennarar hans voru Ari Þór Vilhjálmsson og Guðný Guðmundsdóttir. Sama haust hóf Pétur nám við Hochschule für Musik und Theater ,,Felix Mendelssohn Bartholdy" í Leipzig, fyrst undir handleiðslu Elfu Rúnar Kristinsdóttur og svo Carolin Widmann. Árið 2022 lauk hann mastersnámi frá sama skóla undir handleiðslu Carolin Widmann. Til námsauka

hefur hann einnig sótt ótal einkatíma og masterklassa hjá fiðluleikurum á borð við Christian Tetzlaff, Philippe Graffin, Sergei Ostrovsky, Ilya Gringolts og Robert Rozek og hjá

píanóleikaranum Phillip Moll.

Pétur hefur komið víða fram sem einleikari svo sem í Kanada, Íslandi og í Þýskalandi. Í mars 2019 frumlutti hann nýjan fiðlukonsert tileinkaðan honum eftir Elenu Postumi í Langholtskirkju með Ungfóníu. Þá flutti hann Kammerkonzert Alban Berg ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni og Elju kammersveit í Iðnó sama ár en Pétur er virkur stofnfélagi í þeirri sveit. Sem flytjandi kammertónlistar hefur hann komið fram á Íslandi,

Þýskalandi, Sviss og á Ítalíu. Þar má til að mynda nefna reglulega þátttöku hans á Reykholtshátíð, og sumartónleikum í Skálholti og við Kammermúsíkklúbbinn í Reykjavík. Frá 2027 er Pétur ásamt Elenu Postumi listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar. Þá hefur hann spilað og komið fram með Skark Ensemble á Íslandi og á Bodensee Festival í Þýskalandi. Pétur spilar reglulega sem varamaður í Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur gert síðan 2012. Síðan 2023 býr Pétur í Berlín. Þar kemur hann reglulega fram með Kammersymphonie

Berlin og sem varamaður með Rundfunk- Sinfonieorchester Berlin.

Pétur er virkur utan klassísku tónlistarsenunnar en hann hefur verið meðlimur í kvartett Ólafs Arnalds á tónleikaferðalögum hans um heiminn síðan 2018. Þá hefur Pétur tekið upp einleiksfiðlu fyrir Netflix fyrir kvikmyndir og sjónvarpsseríur. Þar ber hæst tónlist Högna

Egilssonar í kvikmynd Baltasars Kormáks, Apex og tónlist eftir Lisu Morgernstern í nú nýútkominni seríu Netflix, The Empress.

Guðbjartur.png
Guðbjartur Hákonarson

Fiðlu- og víóluleikarinn Guðbjartur Hákonarson er víóluleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Áður starfaði hann í tvö ár við Konunglegu dönsku óperuhljómsveitina þar sem hann lék bæði í fyrstu fiðlu- og víóludeild hljómsveitarinnar.

Sem einleikari hefur Guðbjartur komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem ungur einleikari en auk þess hefur hann leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og hljómsveit Jacobs School of Music. Hann hefur einnig gegnt stöðu konsertmeistara hjá Kammersveit Mallorca, Aurora Festival Orchestra og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Guðbjartur er víóluleikari Resonans strengjakvartettsins sem komst árið 2023 í úrslit P2 kammermúsíkkeppninnar á vegum danska ríkisútvarpsins. Áður var hann meðlimur strengjakvartettsins Von í Bandaríkjunum sem hlaut meðal annars fyrsta sæti í Kuttner strengjakvartettkeppni skólans tvö ár í röð og annað sæti í WDAW keppninni. Með kvartettinum tók hann þátt í hátíðum og námskeiðum á borð við Banff, Aspen Music Festival og Heifetz Institute.

Guðbjartur lauk bakkalárnámi frá Jacobs School of Music við Indiana University og meistaraprófi frá Konunglega danska tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn með hæstu einkunn. Meðal kennara hans voru Sigurbjörn Bernharðsson, Mauricio Fuks, Stanley Ritchie og Peter Herresthal.

Síðastliðin ár hefur Guðbjartur jafnframt verið virkur í upptökuvinnu og tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum með fjölda íslenskra og erlendra listamanna.

Photoshoot_Div_edited_edited.jpg
Urh Mrak

Urh Mrak er sellóleikari með víðtækan áhuga og ferska nálgun á klassíska tónlist og samtímatónlist. Hann hefur starfað sem sellóleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2022.

Urh hóf tónlistarnám sex ára gamall og var fjórtán ára tekinn inn í Music and Dance Conservatory í Ljubljana þar sem hann nam sellóleik í fjögur ár undir handleiðslu Milan Hudnik.
Að því loknu hélt hann námi sínu áfram við Royal Academy of Music í London og síðar í Vínarborg við Musik und Darstellende Kunst Universität Wien og

Musik und Kunst Privatuniversität der Stadt Wien undir leiðsögn Bernard Naoki Hedenborg. Þaðan lauk hann Bakkalárnámi og meistaraprófi með láði en stundaði einnig mastersnám í kammermúsík í Rubrik Quartet háskólanum í München undir handleiðslu Quatuor Ébène.

Urh hefur reglulega sótt námskeið hjá þekktum prófessorum og hefur starfað sem aukamaður í Sinfóníuhljómsveit Kärnten frá nóvember 2014. Hann heldur reglulega einleikstónleika ásamt því að leika kammermúsík víða um Evrópu. Hann kom fyrst fram sem einleikari með Alpe-Adria Ungsveitinni í apríl 2016 og síðar sama aár með Sinfóníuhljómsveit Kärnten. Árið 2020 kom hann fram með Musik und Kunst Privatuniversität der Stadt Wien.​

Urh hefur hlotið fjölda námsstyrkja, þar á meðal hlutastyrk frá Royal Academy of Music og námsstyrki fyrir framúrskarandinámsárangur frá Musik und Kunst Privatuniversität der Stadt Wien. Sumarið 2019 tók hann þátt í sumarakademíu Fílharmóníusveitarinnar í Vínarborg í Salzburg og hefur reglulega starfað með kammerhópum og kammerhljómsveitsumarakademíunni. Frá desember 2021 til maí 2022 var hann meðlimur í Tonkünstler-Orchester í Vínarborg. 

​

elena_antjetaiga9 (1)_edited_edited.jpg
Elena Postumi

Elena Postumi hóf píanónám sitt 5 ára gömul í heimaborg sinni, Róm á Ítalíu. Þaðan lá leið hennar í St. Cecilia Konservatoríuna í sömu borg þar sem hún hélt áfram píanónámi meðfram tónsmíðanámi og námi í ljóðasöngsmeðleik. Árið 2017 flutti hún til Leipzig þar sem

hún hélt áfram námi sínu í píanóleik og ljóðasöngsmeðleik við Tónlistarháskólann ,,Felix

Mendelssohn-Bartholdy’’. Hún lauk þaðan  ,Meisterklasse’’ prófi með hæstu einkunn árið

2021 með hljómsveitarstjórn sem aukafag. Árið 2018 hlaut hún verðlaun sem besti meðleikari í Lortzing ljóðasöngskeppninni í Leipzig. Áhugi Elenu á söngröddinni leiddi hana inn í heim óperunnar og starfaði hún sem fastur meðleikari og aðstoðarhljómsveitarstjóri við Staatstheater Darmstadt frá 2020-2023. Auk þess starfaði hún reglulega með Íslensku Óperunni frá árinu 2018 til árs 2023. Frá árinu 2023 til dagsins í dag hefur Elena unnið við ýmis önnur óperuhús í Úrúgvæ, Þýskalandi og á Ítalíu.

Sem hljómsveitarstjóri hefur hún aðallega unnið með nútíma- og samtímatónlist í óperu, en

hún hefur einnig stjórnað sinfónískum tónleikum. Á Íslandi kom hún fyrst fram sem hljómsveitarstjóri í uppfærslu á Brúðkaup Fígarós árið 2025 á 11 uppseldum sýningum í

Borgarleikhúsinu.

Tónverk Elenu hafa verið flutt í Evrópu og í Bandaríkjunum. Leikárið 2022-23 var frumflutt

tónlistarleikverk hennar ,,Becoming Luise Büchner” við Staatstheater Darmstadt. Verkið fékk afar góða dóma, meðal annars frá Frankfurter Allgemeine Zeitung: ,,...samtímatónheimur sem flakkar á milli klassísks tónmáls og jaðar... ’’ . Á Íslandi frumflutti Ungfónían og Pétur Björnsson fiðlukonsert hennar árið 2019 og árið 2021 frumflutti Elja kammersveit og Björg Brjánsdóttir flautukonsert hennar Corifeo delle correnti.

Sem virkur flytjandi ljóðasöngs og kammertónlistar hefur Elena komið fram á tónleikum víðsvegar um Evrópu og í Bandaríkjunum. Á Íslandi hefur hún komið fram reglulega frá árinu 2017 á tónleikum í ýmsum hljómsveitum og á hátíðum. Nýlega má þar nefna þátttöku á Reykholtshátíð, bæði sem píanóleikari og kórstjóri, auk þátttöku á Sönghátið Hafnarborgar fyrir Óperugala í lok hátíðarinnar. Elena mun taka við, ásamt Pétri Björnssyni, sem listrænn

stjórnandi Reykholtshátíðar frá 2027.Frá árinu 2023 hefur Elena reglulega komið fram sem varamaður á píanó og selestu með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Elena kennir nú við listaháskólana í Zürich (Sviss) og Darmstadt (Þýskalandi) og hefur einnig kennt á Íslandi sem gestakennari, meðal annars í Söngskólanum í Reykjavík og Söngskóla Sigurðar Demetz, bæði einkatíma og hóptíma í formi masterklassa.

TMI-Tonlistarsjodur-Merki-B-Svart.png
Harpa-Merki-Svart.png
RUV-ohf_text_Black.png
Black_2x.png
SuT-logo.png

Smelltu á hlekkinn

eða sendu okkur póst

á info@kammer.is

Skrá á póstlista

Fylgdu Kammermúsíkklúbbnum á samfélagsmiðlum

  • Facebook
  • Instagram

2025 © CRESCENDO

bottom of page