top of page
Top

KMK70, NR. 1
27/09/2026 KL. 16

Allt fram streymir
Upphafstónleikar afmælisárs

ODDUR ARNÞÓR JÓNSSON
STEFÁN JÓN BERNHARÐSSON
MATHIAS SUSAAS HALVORSEN
ARI ÞÓR VILHJÁLMSSON
RANNVEIG MARTA SARC
SVAVA BERNHARÐSDÓTTIR
SIGURGEIR AGNARSSON
Efnisskrá
​​

Jón Nordal (1926-2024)​

Systur í Garðshorni – fyrir fiðlu og píanó

I. Ása

II. Signý

III. Helga

​​

​

Hildigunnur Rúnarsdóttir (1964)

Tilbrigði um Einu sinni rerum – fyrir fiðlu og víólu

​

Finnur Karlsson (1988)

Tvenna – fyrir fiðlu og víólu

 

Samuel Barber (1910 - 1981)

Dover Beach – fyrir rödd og strengjakvartett

 

Franz Schubert (1797-1828)

Auf dem Strom – fyrir rödd, horn og píanó

 

Hlé

 

Johannes Brahms (1833 - 1897)

Horntríó í Es-dúr op. 40

 

I. Andante

II. Scherzo: Allegro

III. Adagio mesto

IV. Finale: Allegro con brio

Flytjendur

Oddur Arnþór Jónsson, söngur

Stefán Jón Bernharðsson, horn

Mathias Susaas Halvorsen, píanó

Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla

Rannveig Marta Sarc, fiðla

Rita Porfiris, víóla

Sigurgeir Agnarsson, selló

FLYTJENDUR
Ari-THor-Vilhjalmsson-Violin-1-768x768_edited.jpg
Ari Þór Vilhjálmsson

Ari Þór Vilhjálmsson er listrænn stjórnandi og formaður stjórnar Kammermúsíkklúbbsins. Ari brennur fyrir kammertónlist og hefur margsinnis komið fram í Kammermúsíkklúbbnum á undanförnum árum. Hann fæddist í Reykjavík árið 1981 og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Hann stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum þar sem helstu kennarar hans voru Almita og Roland Vamos, Rachel Barton Pine og Sigurbjörn Bernharðsson.

​

Ari starfaði hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á árunum 2006 til 2015 en flutti þá til Finnlands og tók við leiðarastöðu í Fílharmóníusveitinni í Helsinki. Ari hefur kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík og Sibeliusarakademíuna. Hann er framkvæmdastjóri alþjóðlega tónlistarnámskeiðsins HIMA, sem hefur verið haldið árlega síðan 2013 á Íslandi. Ari er ​leiðari 2. fiðlu Fílharmóníusveitarinnar í Ísrael.

​

Ari hefur komið fram sem einleikari með hljómsveitum víða um Bandaríkin, í Finnlandi og á Íslandi. Í janúar síðastliðnum frumflutti hann fiðlukonsert eftir Þórð Magnússon með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur áður leikið fiðlukonserta m.a. eftir Mozart, Brahms og Shostakovich með hljómsveitinni. Í sumar sem leið, kom hann fram á kammerhátíðinni í Kuhmo í Finnlandi, einni stærstu kammertónlistarhátíðum Evrópu.

SigurgeirAGNARSSON_portr_©KMAACK.jpg
Sigurgeir Agnarsson

Sigurgeir Agnarsson (1976) var ráðinn leiðari sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2017 þar sem hann starfar enn. Hann hefur átt farsælan og fjölbreyttan feril sem flytjandi, kennari og skipuleggjandi margvíslegra tónlistarviðburða. Sigurgeir hefur margsinnis komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og leikið á ýmsum tónlistarhátíðum, bæði hérlendis og erlendis.

 

Árin 2013-2020 var Sigurgeir listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar, einnar rótgrónustu tónlistarhátíðar landsins. Hann hefur verið kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík (nú Menntaskóli í tónlist) síðan 2003 og hefur einnig kennt við Listaháskóla Íslands. Hann er og einn af stofnendum og stjórnarformaður HIMA - Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar. Hann er einnig í stjórn Kammermúsíkklúbbsins.

 

Sigurgeir gaf nýverið út fyrstu sólóplötu sína, NÁND þar sem hann leikur einleiksverk eftir frændurna Huga Guðmundsson og Hafliða Hallgrímsson. 

MathiasHalvorsen.jpeg
Mathias Halvorsen

Mathias Halvorsen er norskur píanóleikari og tónskáld, búsettur í Reykjavík. Efnisskrá hans spannar allt frá hefðbundnum konsertum til tilraunakenndra forma og ýtir oft við mörkum þess hvernig klassísk tónlist er upplifuð í dag.

 

Árið 2024 var Mathias tilnefndur til Spellemannprisen („norsku Grammy-verðlaunanna“) fyrir hljóðritanir þar sem hann leikur píanókonserta fyrir vinstri hönd með Norsku útvarpshljómsveitinni undir stjórn Otto Tausk. Kammeróperuútgáfa hans og fiðluleikarans Mathieu van Bellen af La Bohème, útsett fyrir fiðlu, píanó og varpaðan texta, hlaut hástemmt lof í BBC Music Magazine og hefur tvíeykið síðan ferðast með nýjar uppfærslur á Toscu og Salome. 

 

Halvorsen er listrænn stjórnandi PODIUM – Fartein Valen Internationale Musikkfest og stofnandi LightsOut, alþjóðlegs verkefnis sem heldur tónleika í algjöru myrkri—án ljósa, án truflana, með fulla áherslu á hljóð og nærveru. Hann vinnur einnig í þverfaglegum verkefnum. Nýjasta ópera hans, And Then There Were None – byggð á sögu eftir Agöthu Christie – var frumflutt árið 2023 og lýsti NRK henni sem „glæpsamlega áhrifamikilli“.

 

Halvorsen kafar oft ofan í vanmetna kima efnisskrárinnar. Hann uppgötvaði týndan fimmta píanókonsert Halfdan Cleve árið 2009 og frumflutti hann með Litháísku ríkissinfóníunni. Upptökuverkefni hans eru meðal annars The Well-Tempered Clavier á undirbúnu píanói, Sinding-sónötur með Magnus Boye Hansen, og  On Goldberg and On Palestrina. Þá hefur hann komið fram á virtum tónleikastöðum eins og Philharmonie de Paris, Berliner Philharmonie, Elbphilharmonie Hamburg, Queen Elizabeth Hall í London og á hátíðum eins og Schleswig-Holstein Musik Festival, Brighton Festival, Meltdown (sýningarstjórn Yoko Ono), MOFO í Tasmaníu og Oranjewoud Festival í Hollandi.

IV3C3589-Edit_edited.jpg
Rannveig Marta Sarc

Rannveig Marta Sarc fæddist í Slóveníu og hefur komið fram víða í Ameríku, Asíu og Evrópu. Hún hefur verið einleikari meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Slóvensku filharmóníunni, Bacau „Mihail Jora” filharmóníunni á Ítalíu og Ungfóníunni. Á vettfangi kammertónlistar hefur hún komið fram meðal annars í Carnegie Hall og Alice Tully Hall og á tónlistarhátíðum eins og Ravinia Steans Music Institute, IMS Prussia Cove, Festival Mozaic, Thy Chamber Music Festival og NEXUS Chamber Music Chicago. Rannveig er meðlimur í Kammersveitinni Elju og New York Classical Players. Hún var á samning hjá The Saint Paul Chamber Orchestra árið 2024-2025 og hefur spilað reglulega með Chicago, Buffalo og Milwaukee sinfóníuhljómsveitunum. Rannveig hefur verið konsertmeistari í Civic Orchestra of Chicago, The Juilliard Orchestra, Peoria Symphony og leysti af sem 3. konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands haustið 2022.

 

Rannveig er ötull flytjandi samtímatónlistar. Sem meðlimur Dúó Freyju pantaði hún og frumflutti samtals tíu verk fyrir fiðlu og víólu eftir íslensk tónskáld sem gefin voru út á tveimur plötum undir nafninu Dúó Freyja. 

Rannveig hefur hlotið ýmsar viðurkenningar eins og Luminarts Strings Fellowship 2022, fyrstu verðlaun í the Musicians Club of Women Scholarship Award 2021 og var valin Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2022.

 

Rannveig lauk bakkalár- og meistaragráðu frá The Juilliard School, þar sem hún var á Kovner styrk. Kennarar hennar voru Catherine Cho, Laurie Smukler og Donald Weilerstein, ásamt Robert Mealy á barokk fiðlu. Fyrrum kennarar hennar voru Vila Repše, Lilja Hjaltadóttir, Guðný Guðmundsdóttur á fiðlu og Þórunn Ósk Marinósdóttir á víólu. Rannveig spilar á íslenska fiðlu eftir Hans Jóhannsson.

Rita_edited.jpg
Rita Porfiris

Rita Porfiris víóluleikari hefur komið fram á alþjóðavettvangi í kammertónlist, hljómsveitum og sem einleikari. Hún hefur hlotið Prix Mercure frá Austurríki og verðlaun í Fischoff Chamber og Primrose International Viola Competition. Hún er nú upfærslumaður víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hefur verið meðlimur Houston-sinfóníunnar auk þess að og hafa leikið með Chicago-sinfóníunni, Indianapolis-sinfóníuhljómsveitinni og fyrrverandi Radio Sinfonie Orchestra Berlín. Áður en Rita flutti til Íslands var hún prófessor í víóluleik og formaður kammertónlistardeildar við The Hartt School. Hún er meðlimur QuartetES og Miller-Porfiris Du

Oddur Jónsson (logo)-7_edited.jpg
Oddur Arnþór Jónsson

Oddur Arnþór Jónsson, barítón, hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2018 sem söngvari ársins fyrir hlutverk Michaels í Brothers, margverðlaunaðri óperu Daníels

Bjarnasonar á Listahátíð 2018. Hann var útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2014 fyrir Rodrigo í Don Carlo, sem var frumraun hans í Íslensku óperunni.

Oddur lærði hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Alexander Ashworth í Söngskólanum í Reykjavík og lauk þaðan burtfararprófi. Hann stundaði

framhaldsnám í óperu- og ljóðasöng við Mozarteum háskólann í Salzburg, Austurríki hjá Andreas Macco og Mörthu Sharp. Hann hlaut Lilli Lehmann viðurkenninguna fyrir

framúrskarandi meistarapróf frá Mozarteum Stiftung.

 

Við Íslensku óperuna hefur Oddur sungið titilhlutverkin í Don Giovanni og í Rakaranum frá Sevilla, Rodrigo í Don Carlo, Faðirinn í Hans og Grétu, Ned Keene í Peter Grimes, Greifann í Brúðkaupi Fígarós og Barone Douphol í La traviata. Önnur

óperuhlutverk sem hann hefur sungið eru Wolfram í Tannhäuser og Kurwenal í Tristan und Isolde (Óperuhúsið í Chemnitz, Þýskalandi), Schaunard í La bohème

(Reisopera, Hollandi), Silvio í Pagliacci (Theater Ulm), Oreste í Iphigènie en Tauride og Prins Yeletsky í Pique Dame (Opernbühne Bad Aibling, Þýskalandi). Sem ljóðasöngvari hefur hann flutt Das Lied von der Erde eftir Gustav Mahler í Garnier-óperunni í París, Vetrarferðina og Schwanengesang á Schubert hátíðinni í Vilabertran á Spáni og haldið ljóðatónleika á Britten-Pears hátiðinni og á Oxford

Lieder Festival á Englandi. Hann hefur sungið bassahlutverkin í Jólaóratóríunni, H-moll messunni, Jóhannesar- og Mattheusarpassíunni eftir Bach, Messíasi og Solomon eftir Händel, Requiem og Krýningarmessunni eftir Mozart, Requiem eftir Faurè, Messa di gloria eftir Puccini, Petite Messe Solennelle eftir Rossini, Te Deum

eftir Charpentier og Mysterium eftir Hafliða Hallgrímsson.

 

Oddur hefur hlotið fjölda viðurkenninga í alþjóðlegum keppnum. Hann fékk Schubert

verðlaunin og verðlaun sem besti ljóða- og óratóríu flytjandinn í Francesc Viñas keppninnni í Barcelona. Hann sigraði Brahms-keppnina í Pörtschach í Austurríki og

varð þriðji í Schubert keppninni í Dortmund, Þýskalandi. Hann varð þriðji í Musica Sacra óratóríukeppninni í Róm og söng í úrslitum Belvedere keppninnar 2014. Hann hlaut námsstyrki frá Landsbankanum, Hamel-Stiftung í Hannover og Gianna-Szell í

Salzburg.

Stefan_jon_edited.jpg
Stefán Jón Bernharðsson

Stefán Jón Bernharðsson er leiðari horndeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann lærði hjá Joseph Ognibene og Frøydis Ree Wekre í Osló.

 

Í námi sínu hlaut Stefán fyrstu verðlaun Conoco Phillips keppninnar í Osló, önnur verðlaun í alþjóðlegri hornkeppni í Lieksa og þriðju verðlaun í Cítta di Porcia brass keppninni á Ítalíu.

​

Stefán kemur reglulega fram sem einleikari og í kammerhópum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavíkur ásamt því að fá reglulega boð um að vera gesta leiðari í öðrum sinfóníuhljómsveitum, m.a. öllum helstu hljómsveitum Skandinavíu, Mahler kammersveitinni, Berlínar fílharmóníunni, Deutsches Symphonie-Orchester Berlin, Sinfóníuhljómsveitinni í Melbourne, Skosku kammersveitinni, frönsku útvarpshljómsveitinni, Filarmonica della Scala og New York fílharmóníunni.

Um efnisskrá tónleikanna
About the programme

Tvö verkanna á þessari efnisskrá eru æskuverk, samin af tónskáldum um tvítugt sem voru að stíga sín fyrstu skref á opinberum vettvangi. Jón Nordal samdi Systur í Garðshorni síðla árs 1944, aðeins átján ára gamall. Hann hafði þá í fáein ár stundað nám hjá Victor Urbancic, austurrískum tónlistarmanni sem flúði nasismann til Íslands ásamt fjölskyldu sinni. Jón hafði stundað píanónám og samið lög allt frá barnsaldri. Undir leiðsögn Urbancic spreytti hann sig á að semja hljóðfæratónlist í þjóðlegum anda enda var kennarinn mikill áhugamaður um menningararf síns nýja heimalands. Systur í Garðshorni eru dæmi um þetta, í tónlistinni má greina taktskipti rímnalaganna auk þess sem samstígar fimmundir tvísöngsins setja svip á miðkaflann. Verkið hljómaði í fyrsta sinn á Listamannaþingi vorið 1945, flutt af Birni Ólafssyni og Árna Kristjánssyni sem báðir voru meðal fremstu tónlistarmanna landsins. Viðtökur voru allar hinar prýðilegustu og má segja að þar hafi Jón upplifað sinn fyrsta sigur sem tónskáld. 

 

Dúó Freyja er skipað mæðgunum Svövu Bernharðsdóttur og Rannveigu Mörtu Sarc. Í tilefni af sextugsafmæli Svövu árið 2020 pöntuðu þær og frumfluttu sex ný tónverk eftir konur, meðal annars Tilbrigði við Einu sinni rerum eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Lagið er sótt í þjóðlagasafn Bjarna Þorsteinssonar, en hann gat þess að það væri helst sungið í Vestmannaeyjum og væri líklega erlent að uppruna. Textinn er á þessa leið: „Einu sinni rerum einskipa á sjó / fyrir austan eyjar, sátum þar í ró. / Við vorum að reyna’ að veiða væna keilu’ úr sjó.“ Í meðförum Hildigunnar fylgja stefinu fimm tilbrigði sem hvert hefur sitt yfirbragð, hið fyrsta er leikið pizzicato, hið næsta hefur dapurlegan blæ og þar fram eftir götunum. 

 

Árið 2025 var komið að því að fagna þrítugsafmæli Rannveigar Mörtu og þá pöntuðu þær mæðgur þrjú verk eftir karla – eitt fyrir hvert áratug rétt eins og áður. Eitt þessara verka var Tvenna eftir Finn Karlsson, verk í tveimur köflum. Sá fyrri nefnist Gamalt lag og er byggður á eldra kórverki Finns sem hann setti í nýjan búning fyrir tilefnið. Seinni kaflinn heitir Vögguvísa verslunarmannsins og hann samdi Finnur um verslunarmannahelgina 2025. Ætlunin var að þær mæðgur Svava og Rannveig myndu flytja dúettana fyrir fiðlu og víólu en þar sem Svava er að jafna sig eftir handleggsbrot kemur Rita Porfiris í hennar stað. 

 

Dover Beach er æskuverk rétt eins og Systur í Garðshorni. Samuel Barber var rúmlega tvítugur nemi við Curtis-tónlistarháskólann þegar hann tónsetti hið tregafulla ljóð eftir enska skáldið Matthew Arnold árið 1931. Barber hafði sjálfur góða barítónrödd og þegar Dover Beach var hljóðritað skömmu eftir frumflutninginn fór hann sjálfur með einsöngshlutverkið. Í tónsmíðinni nær hann aðdáunarverðu jafnvægi milli söngs og strengjahljóðfæra, svo að útkoman er kammertónlist eins og hún gerist best. Ári eftir frumflutninginn heyrði hið fræga tónskáld Ralph Vaughan Williams verkið þar sem hann var á fyrirlestraferð í Bandaríkjunum. Hann var orðlaus yfir því hversu vel hefði tekist til og sagði við Barber: „Ég hef reynt nokkrum sinnum að tónsetja þetta ljóð, árangurslaust – en þér tókst það fullkomlega!“

 

Franz Schubert hélt sig alla jafna fjarri sviðsljósinu á sinni stuttu ævi; helsti vettvangur fyrir verk hans voru stofutónleikar fyrir vini og kunningja. Hann hélt aðeins eina opinbera tónleika sem helgaðir voru tónsmíðum hans og fóru þeir fram í Vínarborg í apríl 1828, aðeins hálfu ári áður en hann lést. Fyrir þessa tónleika samdi hann sönglagið Auf dem Strom við ljóð eftir þýska skáldið Ludwig Rellstab. Hann var Schubert hugstæður um þetta leyti því að hann tónsetti sjö önnur ljóð Rellstabs og voru þau gefin út skömmu eftir lát hans undir heitinu Schwanengesang. Það óvenjulega við Auf dem Strom er að þar leika bæði horn og píanó með söngvaranum. Þetta má skýra með því að meðal flytjenda á fyrrnefndum tónleikum var franski hornleikarinn Josef Lewy, sem naut mikillar hylli meðal Vínarbúa og átti sinn þátt í því að uppselt var á viðburðinn. Hinar góðu viðtökur urðu kannski til þess að Schubert samdi skömmu síðar annað verk af svipuðum toga: Hirðirinn á hamrinum (Der Hirt auf dem Felsen) fyrir klarínett og söng. Þegar Schubert samdi Auf dem Strom var ár liðið frá andláti Beethovens og kannski má líta á verkið sem eins konar hyllingu til meistarans sem Schubert dáði svo mjög. Í tónlistinni faldi hann til dæmis vísun í útfararmarsinn úr Hetjuhljómkviðunniauk þess sem anda verksins þykir svipa nokkuð til söngvasveigs Beethovens, An die ferne Geliebte. 

 

Johannes Brahms lagði drjúgan skerf til kammertónlistar eins og kunnugt er. Tríóið fyrir horn, fiðlu og píanó varð til snemma á ferlinum, í maí 1865, þegar Brahms var rúmlega þrítugur. Þá ákvörðun hans að nota horn í stað sellós, eins og almennt tíðkast þegar um píanótríó er að ræða, má líklega rekja til þess að fyrr sama ár lést móðir hans og það olli honum mikilli sorg. Faðir Brahms hafði kennt honum á náttúruhorn í æsku og hljóðfærið tengdist því minningum hans um foreldra sína og æskuárin. Vorið 1865 festi Brahms á blað nokkra þætti Þýsku sálumessunnar, þar sem hann vann einnig úr móðurmissinum, en lagði verkið til hliðar um skeið og samdi horntríóið í staðinn. Tónlistin er um margt dæmigerð fyrir höfundinn; upphafsþátturinn er hlýr og ljóðrænn, scherzóið fjörugt og kraftmikið. Þriðji kaflinn er tilfinningalegur kjarni verksins, dökkt og innilegt tregaljóð. Í lokaþættinum sprettir Brahms aftur úr spori og verkinu lýkur með miklum tilþrifum. 

 

Árni Heimir Ingólfsson 

TMI-Tonlistarsjodur-Merki-B-Svart.png
Harpa-Merki-Svart.png
RUV-ohf_text_Black.png
Black_2x.png
SuT-logo.png

Smelltu á hlekkinn

eða sendu okkur póst

á info@kammer.is

Skrá á póstlista

Fylgdu Kammermúsíkklúbbnum á samfélagsmiðlum

  • Facebook
  • Instagram

2025 © CRESCENDO

bottom of page