KMK70, NR. 2
25/10/2026 KL. 16
Minningar og meistaraverk
Klein, Nordal, Schnittke og Brahms
SIGURBJÖRN BERNHARÐSSON
GUNNHILDUR DAÐADÓTTIR
ÞÓRUNN ÓSK MARINÓSDÓTTIR
RITA PORFIRIS
SIGURÐUR BJARKI GUNNARSSON
Efnisskrá
Gideon Klein (1919 - 1945)
Strengjatríó (1944)
I. Allegro
II. Lento
III. Molto vivace
Jón Nordal (1926 - 2024)
Dúó (1983) – fyrir fiðlu og selló
Alfred Schnittke (1934 - 1998)
Strengjatríó (1985)
I. Moderato
II. Adagio
Hlé
Johannes Brahms (1833 - 1897)
Strengjakvintett nr. 2 í G-dúr op. 111 (1890)
I. Allegro non troppo, ma con brio
II. Adagio
III. Un poco allegretto
IV. Vivace, ma non troppo presto
Flytjendur
Sigurbjörn Bernharðsson, fiðla
Gunnhildur Daðadóttir, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Rita Porfiris, víóla
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
FLYTJENDUR

Sigurbjörn Bernharðsson
Sigurbjörn Bernharðsson er þekktur víða fyrir fiðluleik sinn sem einleikari og með kammerhópum. Einnig er hann meðal virtustu fiðlukennara í Bandaríkjunum og kennir við Oberlin College and Consertvatory í Ohio.
Sem einleikari hefur Sigurbjörn meðal annars komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Cleveland Contemporary Orchestra og Cleveland City Music.
Sem meðlimur í Pacifica Quartet (2000-2017) hefur Sigurbjörn hlotið Grammy verðlaun fyrir besta flutning í flokki kammerhópa, , Musical America Ensemble of the Year award og the Avery Fisher Career Grant. Hann kom fram árlega á yfir 90 tónleikum með Pacifica Quartet í mörgum af þekktustu tónleikasölum heims, þ.á.m. Wigmore Hall, Vienna Konzerthaus, Concertgebouw, Suntory Hall, Alice Tully Hall og Carnegie Hall.
Sigurbjörn hefur komið fram á mörgum af virtustu tónlistarhátíðum heims, þ.á.m. Edinburgh Festival, Ravinia, Tanglewood, Music Academy of the West, Music@Menlo, Aspen Music Festival og Listahátíð Reykjavíkur. Einnig hefur hann, m.a. unnið í samstarfi við Menahem Pressler, Yo-Yo Ma, Jörg Widmann, Lynn Harrell, Leon Fleisher, Emerson kvartettinn, Johannes Moser, Marc-André Hamelin, meðlimi úr Guarneri og Cleveland kvartettunum ásamt því að hafa komið fram í sjónarpi – m.a.The Tonight Show, Saturday Night Live, and the MTV Europe Music Awards með Björk.
Sigurbjörn er listrænn stjórnandi Harpa International Music Academy (HIMA) og stjórnandi og formaður dómnefndar Cooper International Violin Competition. Á sumrin kennir hann við Music Academy of the West, Encore Chamber Music Institute, Tanglewood Music Center, og HIMA. Einnig kemur hann reglulega fram á masterclössum og tónleikum víða í Bandaríkunum, Evrópu og Asíu.

Gunnhildur Daðadóttir
Gunnhildur Daðadóttir fiðluleikari lauk diplómaprófi frá University of Michigan árið 2012 eftir að hafa lokið Mastersnámi frá University of Illinois, diplómu frá Listaháskólnum í Lahti í Finnlandi og B.Mus gráðu frá Listaháskóla Íslands. Á meðan á námi stóð lék Gunnhildur reglulega með sinfóníuhljómsveitum í Illionis, Michigan og Lahti til þess að öðlast hljómsveitarreynslu. Gunnhildur var auk þess sigurvegari í Paul Rolland fiðlukeppninni í Illinois árið 2007.
Eftir heimkomu úr námi hóf Gunnhildur strax starf við Sinfóníuhljómsveit Íslands og starfaði m.a. sem leiðari 2. fiðlu starfsárið 2013-14. Árið 2015 fékk Gunnhildur fastráðningu sem almennur fiðluleikari SÍ. Frá og með hausti 2022 er Gunnhildur aðstoðarleiðari 2.fiðlu Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Gunnhildur hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Unga Fólksins ásamt því að koma reglulega fram með Barokkbandinu Brák, Kammersveit Reykjavíkur, SinfoniaNord og Hljómsveit íslensku Óperunnar.
Gunnhildur er menntaður Suzuki fiðlukennari, hefur kennt við Nýja Tónlistarskólann og Landakotsskóla og er meðlimur Hjálparsveitar Skáta Kópavogi. Gunnhildur er annar af stofnendum Kammerhópsins Jöklu ásamt Guðnýju Jónasdóttur sellóleikara. Gunnhildur er verkefnastjóri í stjórn Reykjavík Early Music Festival frá stofnun.

Þórunn Ósk Marinósdóttir
Þórunn Ósk Marinósdóttir er leiðari víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún er fædd og uppalin
á Akureyri þar sem hún stundaði fiðlunám, lengst af hjá Lilju Hjaltadóttur. Hún lauk Mastersprófi í
víóluleik við Konunglega Tónlistarháskólann í Brussel undir handleiðslu Ervin Schiffer. Í Belgíu var
hún leiðari víóludeildar kammerhljómsveitarinnar Prima la Musica, meðlimur í flæmsku
sólistahljómsveitinni I Fiamminghi undir stjórn Rudolfs Werthens og starfaði í strengjakvartett sem spilaði og ferðaðist með danskompaníinu Rosas.
Þórunn hefur margsinnis komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit
Reykjavíkur, Caput, Prima la Musica, Sumida Triphony Hall Orchestra í Tókýó auk eigin einleikstónleika.
Þórunn kennir víóluleik og kammermúsík við Menntaskóla í tónlist, Listaháskóla Íslands og á
námskeiðum HIMA (Harpa International Music Academy) sem haldin eru árlega á
höfuðborgarsvæðinu. Hún spilar einnig mikið af kammermúsík og er reglulegur gestur Kammermúsíkklúbbsins og tónlistarhátíða í Reykjavík og víðar. Á árunum 2021-2026 var Þórunn
listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar.
Þórunn er einn stofnanda Strokkvartettsins Sigga sem hóf starfsemi sína árið 2012. Kvartettinn hefur í tvígang hlotið íslensku tónlistarverðlaunin; 2018 sem flytjandi ársins og 2023 fyrir hljóðritun ársins
fyrir útgáfu á öllum strengjakvartettum Atla Heimis Sveinssonar. Strokkvartettinn Siggi hefur auk
eigin hljóðritana leikið inn á hljóðritanir Víkings Heiðars á Phillip Glass og Bach, Halldórs Smárasonar
á eigin verkum, Gunnars Andreasar Kristinssonar á eigin verkum svo það helsta sé nefnt en kvartettinn
hefur átt farsælt samstarf við fjölda íslenskra og erlendra tónskálda.
Plötuútgáfan Smekkleysa hefur gefið út hljóðritanir þar sem Þórunn leikur einleik með Kammersveit Reykjavíkur í víólukonsertinum Ombra eftir Hafliða Hallgrímsson og einnig Dagbókarbrot fyrir víólu og píanó, líka eftir Hafliða en einnig hefur hún leikið inn á fjölda kammerhljóðritana.

Rita Porfiris
Rita Porfiris víóluleikari hefur komið fram á alþjóðavettvangi í kammertónlist, hljómsveitum og sem einleikari. Hún hefur hlotið Prix Mercure frá Austurríki og verðlaun í Fischoff Chamber og Primrose International Viola Competition. Hún er nú upfærslumaður víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hefur verið meðlimur Houston-sinfóníunnar auk þess að og hafa leikið með Chicago-sinfóníunni, Indianapolis-sinfóníuhljómsveitinni og fyrrverandi Radio Sinfonie Orchestra Berlín. Áður en Rita flutti til Íslands var hún prófessor í víóluleik og formaður kammertónlistardeildar við The Hartt School. Hún er meðlimur QuartetES og Miller-Porfiris Du
_edited_edited%20(1)%20(1)_edited.jpg)
Sigurður Bjarki Gunnarsson
Sigurður Bjarki Gunnarsson hóf sellónám sjö ára í Tónmenntaskóla Reykjavíkur hjá Ólöfu Sesselju
Óskarsdóttur. Sigurður lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1995 undir handleiðslu
Gunnars Kvaran. Sigurður Bjarki lauk Bachelors-prófi frá Manhattan School of Music árið 1998 þar sem kennari hans var David Soyer og Masters-prófi frá Juilliard-skólanum í New York árið 2000 undir handleiðslu Harvey Shapiro.
Sigurður Bjarki hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit
Reykjavíkur og Sumida Triphony Hall hljómsveitinni í Tókýó. Sigurður Bjarki hefur um árabil starfað
með Kammersveit Reykjavíkur og Caput-hópnum auk þess að koma fram á tónleikum í Kammermúsíkklúbbnum, Tíbrá, Sumartónleikum í Skálholti, Músík í Mývatnssveit, Reykholtshátíð og Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri.
Sigurður Bjarki er stofnfélagi í Strokkvartettinum Sigga sem hefur verið áberandi í tónleikahaldi og
upptökustarfi undanfarin ár og hlaut meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin 2018 sem tónlistarhópur ársins auk þess að fá Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir bestu sígildu hljómplötu ársins 2023. Strokkvartettinn Siggi hefur hljóðritað fjölmörg verk íslenskra tónskálda, bæði á eigin hljómplötum auk þátttöku í útgáfu annarra, meðal annars undir merkjum Deutsche Grammaphon og Sono Luminus.
Sigurður Bjarki var listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar á árunum 2021 til 2026 og kom samhliða því
fram á fjölda tónleika á hátíðinni.
Sigurður Bjarki kennir sellóleik og kammertónlist við Menntaskóla í tónlist og Listaháskóla Íslands en kenndi á árum áður við Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskólann í Reykjavík.
Sigurður Bjarki hefur verið meðlimur í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2002.
Um efnisskrá tónleikanna
Gideon Klein var enn við nám þegar nasistar tóku völd í Tékklandi vorið 1939 og þar sem hann var af gyðingaættum voru honum allar bjargir bannaðar. Síðla árs 1941, þegar Klein var tuttugu og tveggja ára, var hann handsamaður og færður í fangabúðirnar í Theresienstadt eða Terezín, í fjöllunum nyrst í Bæheimi. Þær höfðu nokkra sérstöðu því þar gátu fangar stundað listsköpun af ýmsum toga; erlendum fulltrúum var af og til boðið að skoða aðbúnað fanganna og fengu þar kolranga hugmynd um stöðuna í Þriðja ríki Hitlers. Þarna kom Klein fram sem píanóleikari og samdi allnokkur verk, meðal annars tríóið sem hér hljómar. Það lauk hann við aðeins níu dögum áður en hann var fluttur til Auschwitz; þaðan var hann sendur í smærri búðir og myrtur þar í janúar 1945. Í tónlist sinni fléttar Klein saman krómatískan stíl undir áhrifum frá Schönberg og Berg og svo þjóðlegan tékkneskan stíl þar sem Janáček var fyrirmyndin. Ytri þættir tríósins eru fjörugir en hægi kaflinn er kjarni verksins, átta tilbrigði yfir þjóðlag frá Mæri.
Jón Nordal var eitt virtasta tónskáld Íslands á síðari hluta 20. aldar og naut ekki síst hylli fyrir kórtónlist sína og hljómsveitarverk. Framan af ferlinum samdi hann furðu lítið af kammertónlist, aðeins Systur í Garðshorni (1944), tríó fyrir blásara (1948) og sónötu fyrir fiðlu og píanó (1952). Rúm 30 ár liðu þar til hann tók upp þráðinn á ný með Dúói fyrir fiðlu og selló (1983) og í kjölfarið fylgdu fleiri verk, til dæmis Ristur fyrir klarínett og píanó, strengjakvartett og píanótríó. Dúó er eins og nafnið gefur til kynna samtal tveggja hljóðfæra, íhugult og tjáningarríkt í senn. Jón átti það til að ljúka við verk sín á síðustu stundu en hér tefldi hann á tæpasta vað. Þær Guðný Guðmundsdóttir og Nina Flyer frumfluttu Dúó á Kjarvalsstöðum í febrúar 1983; tónleikarnir fóru fram á laugardagskvöldi en þær stöllur fengu endanlega gerð verksins í hendur upp úr hádegi sama dag.
Rússneska tónskáldið Alfred Schnittke samdi strengjatríó sitt árið 1985 í tilefni þess að öld var liðin frá fæðingu Albans Berg. Það er í tveimur þáttum og þótt tónlistin sé oft nýstárleg er hugsunin að baki verkinu allt að því „klassísk“ – fyrri þátturinn er í sónötuformi en hinn síðari eins konar útfararmars. Eldri verk Schnittkes eru oft gamansöm en í strengjatríóinu býr djúp alvara. Inn á milli ómstríðari kafla bregður fyrir hendingum sem minna á Vínarmeistara fyrri tíðar, einkum Schubert en einnig Mahler og Berg. Tríóið hljómaði í fyrsta sinn í Moskvu í júní 1985 og sagt er að flytjendunum hafi þótt eitthvað ískyggilegt við þessa dökku tónsmíð. Rúmum mánuði seinna hneig Schnittke niður í hópi vina og var milli heims og helju um skeið; hann komst aftur til meðvitundar en var heilsuveill allt til dauðadags rúmum áratug síðar.
Þegar Johannes Brahms samdi strengjakvintett sinn í G-dúr sumarið 1890 var hann tæplega sextugur og átti glæstan feril að baki. Hann hafði hugsað sér kvintettinn sem sitt síðasta verk, að eftir þetta myndi hann njóta lífsins en segja skilið við tónsmíðarnar. „Það er kominn tími til að hætta,“ skrifaði hann Simrock, útgefanda sínum, um sama leyti. Þetta fór þó á annan veg því við verkaskrá hans bættust næstu árin bæði píanóverk og kammertónlist fyrir klarínett. Kvintettinn er um margt dæmigerður fyrir tónlist Brahms. Með því að bæta annarri víólu við áhöfn strengjakvartetts tekst honum að laða fram allt að því sinfónískan hljóm, þéttan og safaríkan. Verkið er líka stórt í sniðum, fjórir þættir í stað þriggja eins og í fyrri kvintettinum. Í fjörugum lokaþættinum bregður fyrir áhrifum frá ungverskum þjóðlögum sem höfðu sett mark sitt á fjölmörg eldri verka tónskáldsins.
Árni Heimir Ingólfsson

