top of page

KMK69, NR. 5
12/4/2026 KL. 14

FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR HÖRPU
OG KAMMERMÚSÍKKLÚBBSINS
​Í KALDALÓNI

​

Harpa-Merki-Svart.png
MIT_logo_texti.png
Efnisskrá og flytjendur
​

Tími: 12. apríl kl. 14:00–15:00 
Staður: Kaldalón, Harpa 
Aldur: 7–15 ára 
Tungumál kynningar: Íslenska (auðvelt að njóta óháð tungumáli) 
Ókeypis aðgangur (Ókeypis aðgöngumiða má nálgast frá 6. apríl á harpa.is)

​

​

Kammermúsíkklúbburinn býður nú í fyrsta sinn upp á fjölskyldutónleika í samstarfi við Fjölskyldudagskrá Hörpu og Menntaskóla í tónlist. Tónleikarnir verða í Kaldalóni og munu ungir og efnilegir hljóðfæraleikarar frá MÍT stíga á svið en kammerhóparnir hafa notið leiðsagnar Þórunnar Óskar Marinósdóttur og Sigurðar Bjarka Gunnarssonar. 

​

Efnisskráin er bæði fjölbreytt og aðgengileg. Fluttir verða valdir kaflar úr kammerverkum eftir Felix Mendelssohn, Dmitri Schostakovich, Antonín Dvořák og Maurice Ravel.

​

Áheyrendur fá jafnframt innsýn í heim kammertónlistar með fróðleik um hljóðfærin, tónskáldin og tónlistarstílinn með það að markmiði að dýpka skilning og auka áhuga ungra hlustenda.

​

Kynnir á tónleikunum er Sigrún Harðardóttir.

​

​

EFNISSKRÁ

 

Maurice Ravel

Strengjakvartett í F-dúr, 2. kafli

Assez vif - Tres rythmé

​

Björney Aronsdóttir, fiðla

Steinunn Dís Öfjörð Sævarsdóttir, fiðla

Haraldur Áss Liljuson, víóla

Urður Eir Baldursdóttir, selló

​

​

Felix Mendelssohn

Píanótríó í d-moll op.49, 1. kafli

Molto allegro agitato

​

Sveindís Eir Steinunnardóttir, fiðla

Baldur Þórarinsson, selló

Sól Björnsdóttir, píanó

 

​

Antonín Dvořák

Terzetto í C-dúr, 1.kafli

Allegro ma non troppo

​

Rozalia Mietus, fiðla

Hugrún Birna Hjaltadóttir, fiðla

Arndís Ólafía Snorradóttir, víóla

 

​

Dmitri Shostakovich

Píanótríó í e-moll op.67, 4. kafli

Allegretto-Adagio 

​

Þórdís Emiliía Aronsdóttir, fiðla

Anton Ragnar Vigfússon, selló

Jakob Piotr Grybos, píanó

 

TMI-Tonlistarsjodur-Merki-B-Svart.png
Harpa-Merki-Svart.png
RUV-ohf_text_Black.png
Black_2x.png
SuT-logo.png

Smelltu á hlekkinn

eða sendu okkur póst

á info@kammer.is

Skrá á póstlista

Fylgdu Kammermúsíkklúbbnum á samfélagsmiðlum

  • Facebook
  • Instagram

2025 © CRESCENDO

bottom of page